6
Views

Leiðir þeirra Magnúsar og Óskars lágu fyrst saman í hljómsveitinni Moses Hightower og með söngkonunni Bríeti en haustið 2024 gáfu þeir út hljómplötuna Fermented Friendship. Platan inniheldur nýjar tónsmíðar þeirra beggja þar sem dúnmjúkur hljómur Óskars nýtur sín vel í samtali við fagran píanóleik Magnúsar. 13. febrúar leggur tvíeykið leið sína til Reykjanesbæjar og heldur tónleika í Bergi. Þar munu þeir leika lög af hljómplötu sinni sem og aðrar tónsmíðar þeirra.

Tónleikarnir verða haldnir í Bergi fimmtudaginn 13. febrúar og hefjast klukkan 20. Gengið inn um inngang tónlistarskólans.

Enginn aðgangseyrir á viðburðinn og öll velkomin.


Frá unglingsárum hefur Óskar Guðjónsson verið eftirsóttur saxófónleikari í íslensku tónlistarstórfjölskyldunni. Spunatónlist, djass, stendur hjarta hans næst. Á þeim vettvangi hefur hljómsveit hans ADHD vakið verðskuldaða athygli innan og utan landsteinanna. Óskar hefur einnig starfað með ógrynni listafólks en þar má t.d nefna Mezzoforte, Tómas R. Einarsson, Jim Black, Aaron Parks og Ásgeir Trausta svo nokkur dæmi séu tekin. Samstarf Óskars og Skúla Sverrissonar, bassaleikara og tónskálds, hefur einnig verið gæfuríkt og galopnað augu og eyru Óskars fyrir fleiri möguleikum djasstónlistar. Afraksturinn er tvær plötur og ótal tónleikar.

Magnús Jóhann Ragnarsson hefur frá árinu 2015 hefur verið mjög virkur sem tónlistarflytjandi, tónskáld og upptökustjóri en hann hefur leikið inná hundruði hljóðrita og kemur fram á fjölmörgum tónleikum á ári hverju. Moses Hightower, Floni, Ingibjörg Turchi, Aron Can og Bubbi Morthens eru dæmi um samsstarfsaðila hans en sjálfur hefur Magnús gefið út fjölda sólóplatna og tvær stuttskífur. Auk þeirra gaf hann út dúóplöturnar Án tillits 2021, með Skúla Sverrissyni, Tíu íslensk sönglög 2022 og Nokkur jólaleg lög 2024 með GDRN auk Fermented Friendship með Óskari Guðjónssyni 2024. Magnús Jóhann var valinn tónlistarflytjandi ársins í opnum flokki á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023.


Tónleikaröð Ellýjar er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, Menningarsjóði Reykjanesbæjar, Reykjanesapóteki, HS Orku og Samkaup í samstarfi við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Bókasafn Reykjanesbæjar og Hljómahöll.

Comments are closed.