Feðginin bjóða upp á fjölbreytta blandaða efnisskrá eigin verka, nýrri og eldri, auk standarda og jafnvel þjóðlaga. Um verður að ræða bæði sungna og „instrumental“ tónlist. Lög og textar eftir bæði. Anna Gréta mun leika á píanó og syngja. Sigurður spilar á saxófóna og bassaklarinett.
Tónleikarnir verða haldnir í Bergi fimmtudaginn 20. maí og hefjast klukkan 20.
Gengið inn um dyr tónlistarskólans.
Enginn aðgangseyrir á viðburðinn og öll velkomin.

Píanóleikarinn og söngvarinn Anna Gréta Sigurðardóttir tengir saman norrænan djass og popptónlist með ljóðrænum tónsmíðum sem skapa eigin heim. Anna Gréta útskrifaðist frá Tónlistarskóla FIH en lauk síðar bakkalár- og meistaragráðu frá Tónlistarháskólanum í Stokkhólmi en þar hefur hún búið undanfarin tíu ár. Hún hefur leikið með fjöldanum öllum af þekktu sænsku djasstónlistarfólki en leggur nú mesta áherslu á eigin verkefni. Anna Gréta hefur gefið út þrjár plötur hjá hinu virta þýska útgáfufyrirtæki ACT. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar á undanförnum árum; Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2015, Verðlaun Fasching djassklúbbsins í Stokkhólmi 2018 og Monica Zetterlund verðlaunin 2019. Hún hlaut tilnefningu Jazzkatten verðlaunanna á vegum sænska útvarpsins 2019 og tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019. Plata hennar Nightjar in the northern sky var djassplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2019 og Anna Gréta hlaut einnig verðlaun sem djasshöfundur ársins. Hún hlaut verðlaun Ystad djasspíanóhátíðarinnar 2022.

Saxófónleikarinn Sigurður Flosason útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1983. Hann lauk bakkalár- og meistaragráðum frá Indiana University í Bandaríkjunum 1986 og 1988, bæði í klassískum saxófónleik og djassfræðum. Sigurður stundaði síðan í framhaldinu einkanám hjá hjá George Coleman í New York. Siguður hefur verið mjög virkur í öllum geirum íslensks tónlistarlífs undanfarna áratugi og hefur gefið út rúmlega 30 plötur. Á þeim er fjölbreytt úrval tónlistar; frumsamin tónlist, djassstandardar, þjóðleg tónlist, trúarleg tónlist, tilraunatónlist, kórtónlist og blús, svo eitthvað sé nefnt. Sigurður hefur níu sinnum hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin, tvisvar verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs og einu sinni til Dönsku tónlistarverlaunanna. Hann hefur leikið mikið erlendis, bæði í eigin verkefnum og samstarfsverefnum með erlendum listamönnum. Sigurður hefur verið framarlega í þróun rytmískrar tónlistarkennslu hér á landi og gengt leiðandi störfum á því sviði við Tónlistarskóla FIH, Menntaskóla í tónlist og nú síðast við Listaháskóla Íslands þar sem hann gegnir stöðu prófessors og fagstjóra rytmískrar tónlistar. Sigurður var sæmdur Fálkorðunni árið 2021 fyrir framlag sitt til djasstónlistar og tónlistarkennslu.